Fotbolti.net
22.01.15 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Rodrigo Gomes Mateo í Grindavík (Staðfest)

Rodrigo Gomes Mateo í Grindavík (Staðfest)
Canon

Mynd: Grindavík

Spænski miðvörðurinn Rodrigo Gomes Mateo hefur gengið til liðs við Grindavík en hann skrifaði undir hjá félaginu í dag.

Rodrigo hefur æft með Grindavík að undanförnu og spilað með liðinu í Fótbolta.net.
Hinn 25 ára gamli Rodrigo spilaði með Sindra í 2. deildinni síðastliðið sumar.

Þá skoraði Rodrigo tvö mörk í 19 leikjum með Sindra.

Þessi hávaxni leikmaður þekkir Óla Stefán Flóventsson aðstoðarþjálfara Grindvíkinga en hann þjálfaði áður Sindra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.