22.01.15 - 16:28
Magnús Már Einarsson
Siggi Donna tekur við Tindastóli (Staðfest)

Siggi Donna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Siggi Donna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurður Halldórsson hefur verið ráðinn þjálfari hjá Tindastóli og mun þjálfa liðið í 2. deildinni í sumar. Sigurður sem býr á Sauðárkróki hefur áður þjálfað hjá félaginu og þekkir bæði félagið og leikmennina inn og út.
Sigurður hefur þjálfað í öllum deildum í 24 ár, bæði meistaraflokk karla og kvenna sem og 2.flokk
Sigurður byrjaði þjálfaraferil sinn 28 ára gamall hjá Völsungi sem þá voru í næstefstu deild en Sigurður hafði þá verið lykilmaður hjá ÍA sem varð tvöfaldir meistarar tvö ár í röð.
Sem þjálfari hefur Sigurður farið sex sinnum upp um deild með m.fl. þar af tvisvar með Tindastól.
Sem leikmaður á Sigurður A landsleiki, U landsleiki, Evrópuleiki og um 350 m.fl. leiki, langflesta með ÍA. Fjórum sinnum varð hann íslandsmeistari og fjórum sinnum bikarmeistari
,,Sigurður hefur átt farsælan feril bæði sem þjálfari og leikmaður og er boðinn velkominn til starfa,\" segir í tilkynningu frá Tindastóli.