22.01.15 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Tómas Hassing í Árborg (Staðfest)

Mynd: Árborg

Mynd: Árborg
Árborg hefur fengið sóknarmanninn Tómas Ingva Hassing til liðs við sig frá Hamri en sunnlenska.is greinir frá.
Tómas gekk í raðir Árborgar fyrir helgi frá uppeldisfélagi sínu, Hamri í Hveragerði.
Tómas, sem er tvítugur, hefur leikið 49 meistaraflokksleiki fyrir Hamar og skorað í þeim 15 mörk, en hann skoraði sjö mörk fyrir liðið í 3. deildinni í fyrra.
Árborg hefur keppni í deildarbikarnum um miðjan mars en liðið er í riðli með Ísbirninum, KB, KFG, Kormáki og Vængjum Júpíters.