Nampalys Mendy og Jamie Vardy voru báðir í byrjunarliði Leicester í kvöld þegar liðið tók á móti West Ham.
Þeir þurftu báðir að fara af velli vegna meiðsla. Mendy varð fyrir höggi eftir rúman hálftíma leik og þurfti að yfirgefa völlinn. Wilfried Ndidi tók hans stöðu á vellinum.
Þeir þurftu báðir að fara af velli vegna meiðsla. Mendy varð fyrir höggi eftir rúman hálftíma leik og þurfti að yfirgefa völlinn. Wilfried Ndidi tók hans stöðu á vellinum.
Tæplega tíu mínútum seinna varð Jamie Vardy, framherji Leicester og markahæsti leikmaður deildarinnar, að yfirgefa völlinn. Hann virtist togna aftan í læri og inn kom Kelechi Iheanacho.
Leicester leiðir 2-0 í hálfleik. Ricardo Pereira lagði upp fyrrra markið fyrir Harvey Barnes og Barnes launaði svo Pereira greiðan í uppbótartíma fyrri hálfleiks með stoðsendingu.
Athugasemdir