Chorley 0 - 1 Wolves
0-1 Vitinha('12)
0-1 Vitinha('12)
Wolves er komið áfram í enska bikarnum eftir leik við smálið Chorley á útivelli í 16-liða úrslitum.
Chorley kom verulega á óvart í síðustu umferð og sló út úrvalsdeildarlið Leeds með sannfærandi 3-0 sigri.
Wolves reyndist þó aðeins of erfiður andstæðingur í kvöld og hafði betur með einu marki gegn engu.
Chorley fékk sín tækifæri til að skora í kvöld en eina markið gerði Vitinha með langskoti fyrir Wolves í fyrri hálfleik.
Bikarævintýri Chorley er því á enda en liðið stóð í Wolves í kvöld og geta farið stoltir af velli.
Athugasemdir