Levante 2 - 2 Valladolid
1-0 Daniel Alcon('62)
1-1 Ruben Alcaraz('73)
1-2 Pablo Hervais('78)
2-2 Marti Roger('83)
1-0 Daniel Alcon('62)
1-1 Ruben Alcaraz('73)
1-2 Pablo Hervais('78)
2-2 Marti Roger('83)
Það fór fram einn leikur á Spáni í kvöld en Levante og Real Valladolid áttust þá við á heimavelli þess fyrrnefnda.
Leikurinn fór ekki almennilega af stað fyrr en í seinni hálfleik er Daniel Alcon kom Levante yfir.
Sú forysta entist ekki lengi en 16 mínútum síðar var staðan orðin 2-1 fyrir Valladolid en þeir Ruben Alcaraz og Pablo Hervais geðru mörkin.
Marti Roger sá svo um að tryggja heimaliðinu stig en hann jafnaði metin þegar sjö mínútur voru eftir.
Valladolid situr í 15. sæti deildarinnar með 20 stig og er Levante með 23 í því 10.
Athugasemdir