Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 22. janúar 2022 13:32
Brynjar Ingi Erluson
Bauluðu á Digne sem svaraði með stoðsendingu - Fékk flösku í hausinn
Stuðningsmenn köstuðu flöskum sem hæfði Matty Cash og Digne
Stuðningsmenn köstuðu flöskum sem hæfði Matty Cash og Digne
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn Everton eru undarlegum gír á Goodison Park í dag en Aston Villa leiðir 1-0 þegar þetta er skrifað í hálfleik.

Franski vinstri bakvörðurinn Lucas Digne var einn besti leikmaður Everton en komst í ónáðina hjá Rafael Benítez.

Það varð til þess að Digne bað um að yfirgefa félagið og var hann seldur til Villa fyrir um það bil 25 milljónir punda.

Benítez var rekinn nokkrum dögum síðar, stuðningsmönnum félagsins til mikillar ánægju.

Digne er í byrjunarliði Villa og fékk heldur óblíðar móttökur og hafa stuðningsmennirnir baulað á hann í leiknum. Hann svaraði því með að leggja upp mark fyrir Emi Buendia undir lok fyrri hálfleiks.

Í fagnaðarlátunum köstuðu stuðningsmenn flöskum og öðrum aðskotahlutum í leikmenn Villa sem lágu í grasinu, þar á meðal Digne. Hægt er að sjá myndband af atvikinu hér fyrir neðan.

Sjáðu atvikið hér
Athugasemdir
banner
banner