Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 22. janúar 2022 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Fótbolta.net mótið C-deild: Haukar mörðu Kára
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það fóru tveir leikir fram í C-deild Fótbolta.net mótsins í dag þar sem Haukar lögðu Kára að velli í hörkuslag.

Haukar komust í tveggja marka forystu en Andri Júlíusson náði að jafna fyrir Kára og var staðan 2-2 þar til undir lokin.

Aron Skúli Brynjarsson gerði þá sitt annað mark í leiknum sem reyndist sigurmark Hauka.

Augnablik hafði þá betur gegn Elliða þar sem Gunnar Breki Mýrdal Gunnarsson gerði eina mark leiksins og um leið sitt fyrsta meistaraflokksmark.

Liðin mættust í fyrstu umferð.

Riðill 1
Elliði 0 - 1 Augnablik
0-1 Gunnar Breki Mýrdal Gunnarsson

Riðill 2
Haukar 3 - 2 Kári
1-0 Gísli Þröstur Kristjánsson ('11)
2-0 Aron Skúli Brynjarsson ('33)
2-1 Andri Júlíusson ('45)
2-2 Andri Júlíusson ('65)
3-2 Aron Skúli Brynjarsson ('85)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner