Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 22. janúar 2022 13:13
Brynjar Ingi Erluson
Starf Ranieri hangir á bláþræði - Rekinn um helgina?
Claudio Ranieri
Claudio Ranieri
Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildarfélagið Watford er alvarlega að íhuga það að reka Claudio Ranieri um helgina en þetta kemur fram í Telegraph í dag.

Watford hefur tapað sjö af síðustu átta deildarleikjum sínum og situr í 18. sæti deildarinnar með aðeins 14 stig.

Liðið tapaði fyrir Norwich í gær, 3-1, og hangir starf Ranieri á bláþræði.

Samkvæmt Telegraph gæti hann fengið sparkið um helgina en næsta æfing liðsins er ekki fyrr en á þriðjudag og mun því ákvörðun liggja fyrir á næstu dögum.

Ranieri bað stuðningsmenn félagsins afsökunar eftir tapið gegn Norwich og sagði um leið að þeir leikmenn sem hefðu ekki trú á verkefninu gætu vinsamlegast haldið sig heima.
Athugasemdir
banner
banner