Fotbolti.net
22.02.21 - 21:53
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Ítalía: Ronaldo skoraði tvö í sigri á Crotone

Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk fyrir Juventus

Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk fyrir Juventus

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Juventus 3 - 0 Crotone</b>
1-0 Cristiano Ronaldo ('38 )
2-0 Cristiano Ronaldo ('45 )
3-0 Weston McKennie ('66 )
Portúgalski sóknarmaðurinn Cristiano Ronaldo gerði tvö mörk fyrir Juventus er það vann Crotone 3-0 í Seríu A á Ítalíu í dag.

Juventus var betri aðilinn í leiknum eins og við var að búast en Aaron Ramsey átti tvö hættuleg færi og skalla í slá áður en Ronaldo kom Juventus yfir með skalla á 38. mínútu.

Sjö mínútum síðar skoraði Ronaldo með öðrum skalla. Hann átti fyrst skot af 30 metra færi sem markvörður Crotone varði til hliðar á Ramsey sem var fljótur að finna svæðið í teignum.

Ronaldo tók hlaupið inn í teig og stökk manna hæst áður en hann stangaði boltann í netið.

Weston McKennie gulltryggði sigurinn með marki af stuttu færi eftir hornspyrnu.

Öruggur 3-0 sigur Juventus og liðið komið upp í 3. sæti deildarinnar með 45 stig, átta stigum á eftir toppliði Inter þegar fimmtán leikir eru eftir af deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.