Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 22. mars 2020 15:30
Ívan Guðjón Baldursson
„Óskhyggja að hefja tímabilið aftur fyrir október"
Henry Winter er mikilsvirtur innan knattspyrnuheimsins.
Henry Winter er mikilsvirtur innan knattspyrnuheimsins.
Mynd: Getty Images
Markmið ensku úrvalsdeildarinnar er að hefja keppni aftur í maí en skiptar skoðanir eru á raunhæfi þess.

Henry Winter, fréttamaður hjá Time, ræddi við kollega sinn sem starfar sem fréttamaður hjá bresku heilbrigðisþjónustunni.

„Kollegi minn sem starfar fyrir NHS segir að það sé óskhyggja að svo mikið sem íhuga að hefja knattspyrnutímabilið aftur fyrir miðjan október," sagði Winter.

Þetta er ekki í takt við ummæli Martin Semmens, framkvæmdastjóra Southampton, sem vill sjá úrvalsdeildina vera í gangi meðan fólk er heima í einangrun.
Athugasemdir
banner
banner