sun 22. mars 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Tveir sýktir hjá Eintracht Frankfurt
Mynd: Getty Images
Tveir leikmenn Eintracht Frankfurt í efstu deild þýska boltans eru sýktir af kórónuveirunni.

Allir 25 leikmenn hópsins hafa tekið próf. 23 eru heilbrigðir á meðan tveir ónefndir leikmenn eru veikir. Allir leikmenn liðsins hafa því verið settir í einangrun.

Knattspyrnumenn í Þýskalandi hafa verið duglegir við að hjálpa heilbrigðiskerfinu í baráttunni gegn veirunni. Þeir hafa gefið samanlagt rúmlega þrjár milljónir evra, eða rétt tæpar 500 milljónir króna, til að greiða fyrir hluta af þeim kostnaði sem skapast við svona faraldur.

Það hafa ekki margir knattspyrnumenn þar í landi sýkst af veirunni enn sem komið er.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner