Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 22. mars 2021 15:30
Magnús Már Einarsson
Aron Elís í liði umferðarinnar
Aron Elís Þrándarson hefur verið valinn í lið umferðarinnar í dönsku úrvalsdeildinni.

Hinn 26 ára gamli Aron Elís skoraði fyrra mark OB í 2-0 útisigri á AaB um helgina.

Aron Elís vann næstflest návígi af öllum leikmönnum í dönsku úrvalsdeildinni um helgina.

Aron hefur spilað átján leiki í dönsku úrvalsdeildinni á tímabilinu en þetta var þriðji leikur hans í byrjunarliði.

Alexander Scholz, fyrrum leikmaður Stjörnunnar, er einnig í liði umferðarinnar en hann var á skotskónum þegar Midtjylland burstaði Vejle 5-0.

Athugasemdir
banner