Magni Grenivík hefur svo sannarlega verið að styrkja sig fyrir átökin í þriðju deildinni í sumar.
Fjórir leikmenn skrifuðu undir samning hjá félaginu í gær. Það eru þeir Viktor Már Heiðarsson en hann spilaði síðast með Magna árið 2021.
Oliver Helgi Gíslason kemur frá KFK þar sem hann skoraði 5 mörk í 6 leikjum í 4. deildinni síðast sumar.
Páll Veigar Ingvason kemur frá Þór en hann kom við sögu í 9 leikjum í Lengjudeildinni síðasta sumar. Að lokum er það svo markvörðurinn Einar Ari Ármannsson en hann kemur frá KA, hann lék með Hömrunum í 4. deild síðasta sumar.
Athugasemdir