22.03.25 - 06:00
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Atli Viðar rýnir í landsliðið á X977 í dag


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Benedikt Bóas Hinriksson og Tómas Þór Þórðarson halda um stjórnartaumana í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag laugardag milli 12 og 14.
Atli Viðar Björnsson fótboltasérfræðingur og fyrrum markahrókur er gestur þáttarins og rýnir með þeim í íslenska landsliðið og þetta einvígi við Kósovó nú þegar fyrri leikurinn er að baki.
Atli Viðar Björnsson fótboltasérfræðingur og fyrrum markahrókur er gestur þáttarins og rýnir með þeim í íslenska landsliðið og þetta einvígi við Kósovó nú þegar fyrri leikurinn er að baki.
Farið verður yfir helstu tíðindi vikunnar og Elvar Geir Magnússon verður í beinni frá Spáni þar sem Ísland mun 'taka á móti' Kósovó á sunnudaginn.
