Fotbolti.net
22.04.26 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Davíð Smári: Gaman að byrja þetta með alvöru hvelli

Auglýsing
Davíð Smári: Gaman að byrja þetta með alvöru hvelli
Canon

Mynd: Fótbolti.net

Lengjudeildin
Lengjudeildin hefst á föstudaginn en stórleikur 1. umferðar verður í Laugardalnum þegar Þróttur og Njarðvík mætast á laugardaginn. Bæði lið voru nálægt því að komast upp í fyrra og eru með yfirlýst markmið að spila í Bestu deildinni á næsta ári.
„Við erum gríðarlega gíraðir í þetta og ótrúlega gaman að þetta byrji á alvöru slag þar sem báðum liðum er spáð mikilli velgengni. Það er virkilega gaman að byrja þetta með alvöru hvelli," segir Davíð Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur.

„Það stefnir allt í ofboðslega skemmtilega deild, mikið lagt í liðin og gríðarlega stórir þjálfarar og fyrrum landsliðsmenn í liðunum. Ég held að það séu flestir vel gíraðir."

„Þróttaraliðið er gríðarlega skemmtilegt lið, þeir eru beittir fram á við og við þurfum bara að vera á okkar degi. Vonandi fáum við skemmtilegan fótboltaleik og mikil gæði."

Í viðtalinu fer Davíð yfir stöðuna á leikmannahópi sínum og greinir frá því að Oumar Diock sé að koma til baka og tvísýnt hvort hann verði í hóp eða ekki í fyrsta leik.

Svona er fyrsta umferðin í Lengjudeild karla:

föstudagur 24. apríl
19:15 Fylkir-Ægir (tekk VÖLLURINN)
19:15 Afturelding-ÍR (Malbikstöðin að Varmá)

laugardagur 25. apríl
14:00 Vestri-Grindavík (Kerecisvöllurinn)
14:00 Þróttur R.-Njarðvík (AVIS völlurinn)
16:00 Völsungur-Leiknir R. (GPG völlurinn)
16:00 HK-Grótta (Kórinn)
Davíð Smári: Gaman að byrja þetta með alvöru hvelli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.