Manchester City er komið á toppinn í ensku úrvalsdeildinni efti að hafa unnið 1-0 sigur á Burnley á Turf Moor í kvöld. Man City og Arsenal eru hlið við hlið með 37 mörk í plús, en City tekur toppsætið á fleiri mörkum skoruðum.
Miðað við byrjun leiksins þá bjuggust líklega flestir við að þetta yrði þægilegt hjá Man City.
Jeremy Doku sendi Erling Braut Haaland í gegn á 5. mínútu sem hljóp inn í teiginn og lyfti boltanum skemmtilega yfir Martin Dubravka í markinu.
Man City gat vel skorað þrjú eða fjögur mörk í fyrri hálfleiknum, en fór illa með færin. Burnley, sem þurfti nauðsynlega á stigum að halda til þess að falla ekki, fékk líka sín færi.
Staðan í hálfleik engu að síður 1-0 og Man City 45 mínútum frá því að taka toppsætið.
Í seinni átti Haaland tilraun sem hafnaði í stönginni og var Pep Guardiola, stjóri liðsins, orðinn pirraður á færanýtingunni. Eins marks forysta, hélt andrúmsloftinu rafmögnuðu.
Man City fann ekki annað mark, en það skipti engu máli þar sem Burnley fann ekki heldur leið til að jafna og lokatölur því 1-0 Man City í vil. Man City er komið á toppinn með 70 stig og með fleiri mörk skoruð en Arsenal á meðan Burnley er fallið aftur niður í B-deildina.
Svekkelsi í Bournemouth
Bournemouth og Leeds gerðu 2-2 jafntefli á Vitality-leikvanginum í Bournemouth. Leedsarar skoruðu jöfnunarmarkið á lokasekúndum leiksins.
Fyrri hálfleikurinn var ekki mikil skemmtun fyrir áhorfendur en það lifnaði aðeins yfir þessu undir lok síðari hálfleiks.
Það smitaðist inn í seinni hálfleikinn því á 60. mínútu skoraði franski framherjinn Junior Kroupi eftir frábæra sendingu inn fyrir frá Marcos Senesi.
Átta mínútum síðar fengu Bournemouth menn óheppilegt mark í bakið er James Hill fékk boltann í sig eftir hornspyrnu. Í raun ótrúlegt hvernig Bournemouth tókst ekki að hreinsa frá, en liðið fékk ótalmargar tilraunir til þess áður en Wilfried Gnonto skaut boltanum í Hill.
Fjórum mínútum fyrir leikslok gerðu heimamenn annað markið er varamaðurinn Rayan skoraði með góðu skoti eftir fyrirgjöf Tyler Adams, sem kom einnig inn á sem varamaður í leiknum.
Í uppbótartíma kom Evanilson boltanum í netið, en markið var dæmt af vegna rangstöðu og þá gat Lukas Nmecha jafnaði metin undir lokin en setti boltann í stöng.
Á síðustu sekúndum leiksins áttu Leedsarar innkast sem var kastað langt inn í teiginn, skallað út á Sean Longstaff sem tók hann viðstöðulaust í hægra hornið. Glæsilegt mark og mikilvægt fyrir Leeds en á sama tíma ótrúlega svekkjandi fyrir Bournemouth sem missti af tækifærinu til að komast upp í sjötta sætið.
Bournemouth er í 7. sæti deildarinnar með 49 stig á meðan Leeds er í 15. sæti með 40 stig, níu stigum fyrir ofan fallsæti þegar fjórar umferðir eru eftir.
Úrslit og markaskorarar:
Bournemouth 1 - 1 Leeds
1-0 Eli Kroupi ('60 )
1-1 James Hill ('68 , sjálfsmark)
Burnley 0 - 1 Manchester City
0-1 Erling Haaland ('5 )



