Spænska blaðið Marca segir að fimm leikmenn gætu yfirgefið Spánarmeistara Barcelona í sumarglugganum.
Hansi Flick, þjálfari Barcelona, hefur fundað með stjórninni um mögulega hreinsun eftir tímabilið og er sagt að þjálfarinn hafi samþykkt að leyfa fimm leikmönnum að fara.
Launaháir menn eru á þessum lista og nokkrir að renna út á samningi.
Marcus Rashford, sem er á láni frá Barcelona, mun líklega fara aftur til Manchester United. Rashford er með 26 milljóna punda kaupákvæði í samningnum og haggast sá verðmiði ekki.
Barcelona er ekki reiðubúið að borga það og er líklegasta niðurstaðan að hann muni snúa aftur á Old Trafford. Það er þó ekkert endilega víst að hann spili með United á næsta tímabili, en Chris Wheeler hjá Daily Mail segir að félagið vilji losa hann af launaskrá. Hann þénar um 400 þúsund pund í vikulaun.
Hollenski miðjumaðurinn Frenkie de Jong er þá einn launahæsti leikmaður félagsins með 400 þúsund evrur á viku, en framtíð hans er rædd á hverju sumri og er talið líklegra í ár að hann verði seldur en hann er samningsbundinn til 2029.
Man Utd hefur lengi haft áhuga á De Jong sem hefur spilað með Barcelona frá 2019.
Hinir þrír leikmennirnir eru Robert Lewandowski, Marc Casado og Andreas Christensen. Lewandowski og Christensen eru að renna út á samningi og ekki stendur til að framlengja við þá.
Casado er 22 ára gamall miðjumaður sem hefur ekki spilað stórt hlutverk í liðinu á þessu tímabili. Hann er samningsbundinn til 2028.



