Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   mið 22. apríl 2026 16:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Rosenior rekinn (Staðfest)
Liam Rosenior rekinn.
Liam Rosenior rekinn.
Mynd: EPA
McFarlane tekur við til bráðabirgða.
McFarlane tekur við til bráðabirgða.
Mynd: EPA
Chelsea er búið að reka Liam Rosenior úr starfi sem stjóri liðsins. Hann var einungis rúma þrjá mánuði í starfi.

Í yfirlýsingu Chelsea er Rosenior og hans teymi þakkað fyrir sín störf hjá félaginu. Sagt er að ákvörðunin hafi ekki verið auðveld en eftir úrslit síðustu leikja og frammistöðu liðsins þá hafi þurft að gera breytingu þar sem enn sé mikið undir í lokaleikjunum.

Chelsea hefur tapað fimm deildarleikjum í röð og þarf gengið að snarbatna ef liðið ætlar að ná Evrópusæti. Í leikjunum fimm náði Chelsea ekki að skora. Síðasti nagli í kistu Rosenior var 3-0 tapið gegn Brighton í gær.

Calum McFarlane (1985), sem stýrði leiknum gegn Manchester City snemma í janúar, mun stýra liðinu til bráðabirgða út tímabilið með stuðningi frá þjálfarateymi félagsins. Leikurinn gegn City endaði með 1-1 jafntefli.

Framundan er barátta um Meistaradeildarsæti og undanúrslitaleikur gegn Leeds í enska bikarnum.

Chelsea ætlar að gefa sér tíma í að ráða stjóra til frambúðar.

Rosenior stýrði Chelsea í 104 daga og í 23 leikjum. Liðið náði í 1,31 stig að meðaltali í leik í 13 deildarleikjum sem er það næstversta á 21. öldinni, einungis Graham Potter gerði verri hluti.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
2 Man City 32 20 7 5 65 29 +36 67
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
8 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
9 Bournemouth 33 11 15 7 50 50 0 48
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 33 9 12 12 42 49 -7 39
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 33 4 8 21 34 67 -33 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner
banner