22.04.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Spánn í dag - Barcelona og bikarmeistararnir á heimavelli

Orri Steinn gæti fengið fleiri mínútur fyrst Evrópusætið er tryggt

Mynd: EPA

Orri Steinn gæti fengið fleiri mínútur fyrst Evrópusætið er tryggt

Mynd: EPA
Í dag fer fram 32. umferð La Liga á Spáni, en Barcelona getur færst nær titlinum er það tekur á móti Celta Vigo á Camp Nou.
Elche og Atlético Madríd mætast í fyrsta leiknum klukkan 17:00. Atlético er í 4. sæti sem gefur þátttöku í Meistaradeildina, en liðið er með ellefu stiga forystu á næsta lið. Elche er í fallsæti, einu stigi frá öruggu sæti.
Nýkrýndir bikarmeistarar Real Sociedad taka á móti Getafe klukkan 18:00. Sociedad er öruggt með Evrópudeildarsæti á næstu leiktíð og þarf því ekki að hafa áhyggjur af Evrópusæti og því verulega líklegt að Orri Steinn Óskarsson fái fleiri mínútur í síðustu leikjum tímabilsins.
Topplið Barcelona mætir Celta Vigo á Camp Nou. Börsungar eru með sex stiga forystu eftir að Real Madrid vann Deportivo Alaves í gær.
Leikir dagsins:
17:00 Elche - Atletico Madrid
18:00 Real Sociedad - Getafe
19:30 Barcelona - Celta

La Liga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Barcelona | 12 | +35 | 33 |
| 2 | Real Madrid | 12 | +21 | 30 |
| 3 | Atletico Madrid | 12 | +13 | 28 |
| 4 | Betis | 12 | +5 | 26 |
| 5 | Real Sociedad | 12 | +1 | 22 |
| 6 | Sevilla | 12 | -2 | 18 |
| 7 | Athletic | 11 | +4 | 16 |
| 8 | Villarreal | 12 | +2 | 15 |
| 9 | Deportivo | 12 | +1 | 15 |
| 10 | Racing Santander | 12 | -13 | 14 |
| 11 | Celta | 12 | 0 | 13 |
| 12 | Alaves | 12 | -2 | 13 |
| 13 | Espanyol | 12 | -1 | 12 |
| 14 | Vallecano | 11 | -6 | 12 |
| 15 | Getafe | 12 | -10 | 12 |
| 16 | Osasuna | 12 | -11 | 12 |
| 17 | Levante | 12 | -5 | 11 |
| 18 | Elche | 12 | -6 | 10 |
| 19 | Valencia | 12 | -12 | 9 |
| 20 | Malaga | 12 | -14 | 5 |