Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   mið 22. apríl 2026 23:30
Brynjar Ingi Erluson
Stoltur þrátt fyrir fall - „Skildum allt eftir á vellinum“
Scott Parker
Scott Parker
Mynd: EPA
Burnley er fallið aftur niður í B-deildina eftir 1-0 tap liðsins gegn Manchester City á Turf Moor í kvöld. Scott Parker, stjóri Burnley, veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér.

Parker kom Burnley upp í úrvalsdeildina á síðasta ári þar sem vörn Burnley var ótrúleg og hélt hreinu í 30 deildarleikjum.

Úrvalsdeildin er önnur skepna og lærðu Burnley-menn það hratt, en á þessu tímabili hefur liðið fengið 68 mörk á sig og aðeins haldið hreinu í fjórum leikjum.

Í kvöld féll síðan liðið en Parker sagðist þrátt fyrir það vera stoltur af hópnum.

„Mér fannst frammistaðan segja mjög mikið um okkur sem leikmannahóp. Það óumflýjanlega var til staðar, en ég er stoltur af leikmönnunum. Það vantaði aðeins upp á.“

„Mér fannst andrúmsloftið frábært. Það hefur verið mismunandi á vissum augnablikum og ég skil pirringinn, en við skildum allt eftir á vellinum í kvöld. Ég sagði við hópinn að þetta hafi verið nákvæmlega það sem áhorfendur vildu sjá og við gerðum nákvæmlega eins og til ætlast,“
sagði Parker.

Stjórinn gat ekki lofað því að hann verði áfram hjá Burnley á næstu leiktíð. Hann mun funda með stjórninni eftir tímabilið og skoða næstu skref.

„Félagið hefur þurft að koma nokkrum sinnum til baka á síðustu árum. Það er enn margt sem má draga lærdóm af og það er nákvæmlega það sem við munum gera. Við munum skoða hvað það var sem vantaði og þurfum að finna út hvað við gerðum rangt og koma sterkari til baka á næsta ári.“

„Þetta hefur verið vægðarlaust tímabil fyrir alla, þar á meðal mig. Ég og stjórnin munum setjast niður, skoða málin og finna út hvert við stefnum héðan og vinna út frá því,“
sagði Parker í lokin.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 37 25 7 5 69 26 +43 82
2 Man City 36 23 8 5 75 32 +43 77
3 Man Utd 37 19 11 7 66 50 +16 68
4 Aston Villa 37 18 8 11 54 48 +6 62
5 Liverpool 37 17 8 12 62 52 +10 59
6 Bournemouth 36 13 16 7 56 52 +4 55
7 Brighton 37 14 11 12 52 43 +9 53
8 Brentford 37 14 10 13 54 51 +3 52
9 Sunderland 37 13 12 12 40 47 -7 51
10 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
11 Newcastle 37 14 7 16 53 53 0 49
12 Everton 37 13 10 14 47 49 -2 49
13 Fulham 37 14 7 16 45 51 -6 49
14 Leeds 37 11 14 12 49 53 -4 47
15 Crystal Palace 37 11 12 14 40 49 -9 45
16 Nott. Forest 37 11 10 16 47 50 -3 43
17 Tottenham 36 9 11 16 46 55 -9 38
18 West Ham 37 9 9 19 43 65 -22 36
19 Burnley 37 4 9 24 37 74 -37 21
20 Wolves 37 3 10 24 26 67 -41 19
Slapp
banner