Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   mið 22. apríl 2026 21:21
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Bayern í úrslit í fyrsta sinn í sex ár
Luis Díaz fagnar öðru marki Bayern
Luis Díaz fagnar öðru marki Bayern
Mynd: EPA
Bayer 0 - 2 Bayern
0-1 Harry Kane ('22 )
0-2 Luis Diaz ('90 )

Nýkrýndir Þýskalandsmeistarar Bayern München unnu Bayer Leverkusen, 2-0, og eru komnir í úrslit þýska bikarsins í fyrsta sinn síðan árið 2020. Harry Kane og Luis Díaz skoruðu mörk Bæjara.

Kane skoraði 52. mark sitt á tímabilinu eftir 22 mínútur þegar Michael Olise kom boltanum á Jamal Musiala sem fann Kane í teignum sem setti boltann í þaknetið.

Bayern var sterkari aðilinn í leiknum og gat skorað nokkur mörk til viðbótar, en það var ekki fyrr en á lokasekúndum leiksins sem Luis Díaz gerði út um leikinn.

Sendingin kom úr hægri bakverðinum, í gegnum klofið á Olise, sem galopnaði vörn Leverkusen. Leon Goretzka tók við boltanum, sendi hann til hliðar á Díaz sem afgreiddi færið vel.

Bayern er komið í bikarúrslit í fyrsta sinn síðan 2020 og mætir þar Stuttgart eða Freiburg.
Slapp
banner
banner
banner