Þriðja umferð Bestu deildarinnar hófst með tveimur jafnteflisleikjum sem voru spilaðir við ólíkar en umdeildar aðstæður.
„Það er til skammar fyrir Bestu deildina að bjóða upp á mjög lélegan grasvöll í Keflavík og Akraneshöllina samdægurs. Ömurleg auglýsing fyrir deildina sem fælir frá áhorfendur," skrifar Hörður Snævar Jónsson, ritstjóri 433.is og þjálfari Dalvíkur/Reynis, á X samfélagsmiðlinum.
Leikur ÍA og KA var færður inn í Akraneshöllina þar sem aðalvöllur Skagamanna er ekki tilbúinn. Það hefur verið gagnrýnt talsvert undanfarin ár að höllin sé leyfð sem varavöllur.
„Að þessi leikur skuli vera í Akraneshöllinni er fáránlegt. Verðum að fara setja harðar reglur á hvað er í lagi að nota sem varavelli í Bestu deildinni," skrifar Haraldur Örn Haraldsson, fréttamaður Fótbolta.net en leikurinn endaði 1-1.
„Sérkennilegt að vera hér innanhúss og fimm sinnum kom það fyrir að boltanum var sparkað upp í loft, eða öllu heldur upp undir þakið, og til þurfti dómarakast," segir íþróttafréttamaðurinn Valur Páll Eiríksson í umfjöllun á Vísi.
Fyrsti grasleikur Bestu deildarinnar þetta tímabilið var markalaus og gæðalítill leikur Keflavíkur og Breiðabliks sem spilaður var við erfiðar aðstæður á þungum velli.

Hér má sjá samantekt á umræðu á X samfélagsmiðlinum:
Það er til skammar fyrir Bestu deildina að bjóða upp á mjög lélegan grasvöll í Keflavík og Akraneshöllina samdægurs.
— Hörður S Jónsson (@hoddi23) April 22, 2026
Ömurleg auglýsing fyrir deildina sem fælir frá áhorfendur
Að þessi leikur skuli vera í Akraneshöllinni er fáránlegt. Verðum að fara setja harðar reglur á hvað er í lagi að nota sem varavelli í Bestu deildinni
— Öddi (@haraldur_orn) April 22, 2026
Í Keflavík er knattspyrna spiluð á náttúrulegu grasi undir lofti ber - en í skemmu á gervigrasi á Akranesi...
— Eysteinn Eyjólfsson (@EysteinnEy) April 22, 2026
Þetta gras í Keflavík er ALGJÖR hryllingur! Skil ekki af hverju þetta er leyft.
— Sigmundur Freyr (@sigmundurh) April 22, 2026
Hvar er þessi nýji “gæða stjóri” núna, guð minn almáttugur
— Róbert Mar Jónsson (@RbertMarJnsson1) April 22, 2026
Hefði frekar kosið að spila á sléttu gervigrasi #fotboltinet https://t.co/CxfGHHeHNg
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) April 22, 2026
Nánar um leikina: