Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
Davíð Smári: Það lítur ekki vel út fyrir Jóhann
Gunnar Heiðar: Helvíti langur tími fyrir fótboltaþjálfara
Jóhann Birnir svekktur: Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna
Fannst ekki ganga nógu vel að koma mönnum niður á jörðina eftir leikinn gegn FH
Brynjar Björn: Stór og sterkur og það er eitthvað sem vantaði
Venni: Æðislegt að hann taki þátt í þessu með okkur
Hallgrímur Mar: Loksins kominn í eitthvað stand
Hallgrímur Jónasar: Það býr meira í KA liðinu
Jói Kalli: Stuðningsmenn FH hafa allan rétt á sinni skoðun
Aron Sig: Væri högg fyrir hvert einasta lið
Talar um verðskuldaðan sigur: Hægt að vinna fótboltaleiki á fleiri vegu
Rúnar: Dálítið leiðinlegt að vera svona smámunasamur
Hemmi alsæll eftir dísætan sigur - „Ótrúlega fallegt að sjá þetta inni“
Óskar Hrafn: Partíin voru annars staðar
Ólafur Ingi neitar að tjá sig um mögulegt víti Blika
Haraldur Freyr: Flestir komast upp með mikið á móti honum
Fluttur til Keflavíkur og heldur sér uppteknum með fótboltanum
Jökull: Það eina sem ég hef áhyggjur af
Linta: Hötum að tapa en sýndum samt karakter
Viktor Jóns: Erfitt að verja svona
   mið 22. apríl 2026 13:43
Elvar Geir Magnússon
Venni: Honum líður vel og er ekki að fara neitt
Lengjudeildin
Sigurvin Ólafsson og Aron Snær Ingason.
Sigurvin Ólafsson og Aron Snær Ingason.
Mynd: Fótbolti.net
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lengjudeildin hefst á föstudaginn en stórleikur 1. umferðar verður í Laugardalnum þegar Þróttur og Njarðvík mætast á laugardaginn. Bæði lið voru nálægt því að komast upp í fyrra og eru með yfirlýst markmið að spila í Bestu deildinni á næsta ári.

„Frábært að þetta sé að fara af stað. Skemmtilegt að fá svona verðugt verkefni strax í byrjun. Lengjudeildin hefur verið rússíbani síðustu árin og erfitt að spá fyrir um hvað er að fara að gerat. Það er enn frekar þannig í ár. Það eru fleiri lið með raunhæfar væntingar um að fara upp," segir Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar.

Hann reiknar með feikilega sterkri deild í sumar.

„Mér fannst menn streyma upp úr Lengjudeildina í Bestu deildina í fyrra en það er að snúast við, það er svona bakflæði. Fullt af mönnum sem voru í Bestu deildinni í fyrra eru í hinum og þessum Lengjudeildarliðum. Það eykur bara standardinn og gæðin, það er allt á uppleið."

Njarðvíkingar hafa styrkt sig vel í vetur undir stjórn Davíðs Smára Lamude og Sigurvin býst við mjög erfiðum leik.

„Það eru styrkleikar hvert sem þú lítur þar, frábærar og nánast lygilegar viðbætur. Ég get nefnt Alexander Helga núna síðast, Eið Aron, Guy Smit og ég get haldið áfram. Á móti hafa þeir auðvitað misst einhverja menn líka en frábærir leikmenn og flottur þjálfari. Lið með væntingar um að gera vel í sumar rétt eins og við."

Sóknarleikmaðurinn Aron Snær Ingason er eftirsóttur og Valur hefur samkvæmt heimildum gert tilboð í hann. Þróttarar vilja ekki missa Aron og Sigurvin segir það klárt mál að hann sé ekki á förum.

„Nei. Það er ekki planið. Aron er bara klár í verkefnið hérna með okkur, honum líður vel og er ekki að fara neitt"

Svona er fyrsta umferðin í Lengjudeild karla:

föstudagur 24. apríl
19:15 Fylkir-Ægir (tekk VÖLLURINN)
19:15 Afturelding-ÍR (Malbikstöðin að Varmá)

laugardagur 25. apríl
14:00 Vestri-Grindavík (Kerecisvöllurinn)
14:00 Þróttur R.-Njarðvík (AVIS völlurinn)
16:00 Völsungur-Leiknir R. (GPG völlurinn)
16:00 HK-Grótta (Kórinn)
Slapp
banner