Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 22. maí 2019 23:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
3. deild: Markalaust hjá Kórdrengjum og Reyni S.
Kórdrengir eru á toppnum í 3. deild.
Kórdrengir eru á toppnum í 3. deild.
Mynd: Kórdrengir
Kórdrengir 0-0 Reynir S.

Einn leikur var á dagskrá 3. deildar í kvöld, þar mættust Kórdrengir og Reynir Sandgerði í fyrsta leik 4. umferðar.

Kórdrengir unnu fyrstu þrjá leiki sína í deildinni og voru með fullt hús stiga fyrir leikinn, Reynir Sandgerði var í 6. sæti fyrir leikinn í kvöld með fjögur stig.

Lokaniðurstaðan reyndist markalaust jafntefli, Kórdrengir sitja áfram á toppnum og nú með tíu stig, Reynir Sangerði lyfti sér hins vegar upp um eitt sæti og er nú í 5. sæti með fimm stig.

Næsti leikur Kórdrengja er útileikur gegn Einherja, næsti leikur Reynis S. er heimaleikur gegn Vængjum Júpiters.

Athugasemdir
banner
banner