Franski varnarmaðurinn Raphael Varane staðfesti það í gær að hann ætli sér að vera áfram hjá Real Madrid, Varane hafði verið orðaður við brottför frá félaginu.
Varane er viss um að félagið eigi eftir að koma sér í hóp þeirra bestu á ný eftir mjög erfitt tímabil, meðal leikmanna sem eru sterklega orðaðir við Real Madrid eru Belginn Eden Hazard og Frakkinn Paul Pogba.
„Ég get ekki sagt frá því hvað við Pogba tölum um okkar á milli en ég get sagt ykkur að það er alltaf pláss fyrir góða leikmenn hjá Real Madrid og hann er einn af þeim," sagði Varane um félaga sinn í franska landsliðinu.
„Það er auðvitað alltaf mikil barátta um sæti í byrjunarliðinu en það virðist vera möguleiki á að þetta gerist, það er mikið talað um þessi mögulegu félagaskipti, en sjáum til með hvar hann verður í ágúst."
Athugasemdir