Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 22. maí 2022 18:26
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Breiðabliks og Fram: Óbreytt hjá Blikum - Gummi Magg byrjar
Guðmundur Magnússon er í byrjunarliði Fram
Guðmundur Magnússon er í byrjunarliði Fram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik og Fram eigast við í 7. umferð Bestu deildar karla klukkan 19:15 á Kópavogsvelli í kvöld en byrjunarlið beggja liða eru klár.

Lið Breiðabliks er óbreytt frá 3-0 sigrinum gegn Íslandsmeistaraliði Víkings á dögunum.

Jón Sveinsson, þjálfari Fram, gerir þrjár breytingar. Alex Freyr Elísson, Tiago og Guðmundur Magnússon koma inn en Óskar Jónsson, Alexander Már Þorláksson og Gunnar Gunnarsson detta út.

Blikar geta unnið sjöunda leik sinn í röð í Bestu-deildinni en Fram vann sinn fyrsta sigur í síðustu umferð.

Breiðablik:
1. Anton Ari Einarsson (m)
3. Oliver Sigurjónsson
4. Damir Muminovic
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
10. Kristinn Steindórsson
11. Gísli Eyjólfsson
14. Jason Daði Svanþórsson
16. Dagur Dan Þórhallsson
21. Viktor Örn Margeirsson
22. Ísak Snær Þorvaldsson
25. Davíð Ingvarsson

Fram:
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
4. Albert Hafsteinsson
5. Delphin Tshiembe
7. Fred Saraiva
14. Hlynur Atli Magnússon (f)
17. Alex Freyr Elísson
21. Indriði Áki Þorláksson
23. Már Ægisson
28. Tiago Manuel Da Silva Fernandes
77. Guðmundur Magnússon
79. Jannik Holmsgaard
Athugasemdir
banner
banner