Fotbolti.net
22.05.26 - 22:40
Viktor Ingi Valgarðsson

Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu

Auglýsing
Ármann Ingi Finnbogason leikmaður Víking R.

Ármann Ingi Finnbogason leikmaður Víking R.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur gerði með sannfærandi sigur við FH á Víkingsvellinum í kvöld. Heimamenn voru á toppnum þökk sé markatölu fyrir þessa umferð en komnir núna með þriggja stiga forskot á KR sem tapaði í dag.

Ármann Ingi Finnbogason er einn af nýjum leikmönnum Víkings þetta tímabil og lagði tvö mörk upp í 5-0 sigrinum á FH. 

Lestu um leikinn: Víkingur R. 5 - 0 FH

„Mjög góður, fannst við geta skorað fleiri mörk, en við skoruðum fimm og héldum hreinu þannig það er bara drullu gott." 

Ármann Ingi á ennþá eftir að skora í Bestu Deildinni en var mjög nærri því í einu færi sínu í dag. „Já ég átti að skora í dag en það hlýtur að koma í næstum leikjum. Ég held bara áfram að æfa og þá hlýtur þetta að koma."

Ármann Ingi spilaði síðasta tímabil í Lengjudeildinni með Grindavík en er uppalinn á Akranesi með ÍA. Hann er kannski ekki jafnstórt nafn og aðrir leikmenn í Víking en er heldur betur að stimpla sig vel inn liðið og spila mjög vel um þessar mundir. „Það er bara að koma af krafti inn í þetta, sýna það að ég get verið að spila hérna. Svo hafa þeir líka hjálpað mér að komast inn í þetta og það er ástæðan afhverju ég hef verið að spila svona vel. Síðan bara góðir liðsfélagar í kringum mig."

„Ég bjóst alveg við því að ég myndi vera á bekknum eða einhvað lán áður en ég kom, en síðan bara stóð ég mig gríðarlega vel á æfingum og sýndi að ég get alveg spilað í þeirri Bestu."

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

 

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.