Fotbolti.net
22.05.26 - 17:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kjarninn

Byrjunarlið KA og Vals: Tvær breytingar hjá KA - Nakkim í hóp

Guðjón Ernir kemur inn í lið KA.

Guðjón Ernir kemur inn í lið KA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klukkan 18:00 tekur KA á móti Val í 8. umferð Bestu deildarinnar. Leikurinn fer fram á Greifavellinum á Akureyri.

KA er með tíu stig eftir fyrstu sjö leikina en Valur er með tólf stig.
Ragnar Bragi spáir í 8. umferð Bestu deildarinnar
TENGT EFNI

Ragnar Bragi spáir í 8. umferð Bestu deildarinnar

Lestu um leikinn: KA 0 - 1 Valur
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, gerir tvær breytingar á sínu liði frá sigrinum gegn FH í síðustu umferð. Guðjón Ernir og Jakob Héðinn koma inn fyrir Kára Gautason sem sest á bekkinn en Samuel Kroon er ekki með. Hinn ungi Þórir Hrafn Ellertsson kemur inn í hópinn en Jóan Símun Edmundsson er utan hóps.

Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, gerir enga breytingu á sínu liði frá sigrinum gegn Breiðabliki. Þeir Birkir Heimisson og Markus Nakkim koma inn á bekkinn. Varnarmaðurinn Nakkim hefur glímt við meiðsli í upphafi leiktíðar.

Byrjunarlið KA

Steinþór Már Auðunsson, Birgir Baldvinsson, Jeppe Pedersen, Sveinn Margeir Hauksson, Hallgrímur Mar Steingrímsson, Danijel Dejan Djuric, Oliver Heiðarsson, Jakob Héðinn Róbertsson, Markús Máni Pétursson, Hans Viktor Guðmundsson (fyrirliði), Guðjón Ernir Hrafnkelsson

Byrjunarlið Valur

Frederik August Albrecht Schram, Hörður Ingi Gunnarsson, Bjarni Mark Antonsson, Tryggvi Hrafn Haraldsson (fyrirliði), Albin Skoglund, Hólmar Örn Eyjólfsson (fyrirliði), Lúkas Logi Heimisson, Orri Sigurður Ómarsson, Adam Ægir Pálsson, Myles A Veldman, Samúel Kári Friðjónsson

Markus Nakkim snýr aftur hjá Val.

Markus Nakkim snýr aftur hjá Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni Mark er fyrrum leikmaður KA.

Bjarni Mark er fyrrum leikmaður KA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.16+4243
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik15+826
5Valur16-619
6Keflavík16-819
7ÍBV15-716
8Stjarnan15-815
9ÍA15-1215
10KA15-814
11FH15-1112
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.