Fotbolti.net
22.05.26 - 17:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kjarninn

Byrjunarlið Keflavíkur og Þórs: Markakóngurinn inn

Sigfús Fannar byrjar hjá Þórsurum.

Sigfús Fannar byrjar hjá Þórsurum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Núna klukkan 18:00 hefst leikur Keflavíkur og Þórs í Bestu deild karla. Þetta eru nýliðarnir að mætast.

Keflavík er í áttunda sæti deildarinnar með átta stig á meðan Þór hefur tapað fjórum í röð og er í tíunda sæti deildarinnar.
Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 0 Þór
Keflavík gerir eina breytingu á milli leikja. Alpha Conteh kemur inn í liðið frá 1-1 jafnteflinu gegn Stjörnunni en hann mátti ekki spila þann leik þar sem hann er í láni frá Garðabæjarfélaginu. Hann kemur inn fyrir Dag Inga Valsson.

Þór tapaði 1-2 gegn ÍA í síðasta leik en frá þeim leik gerir Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari liðsins, fjórar breytingar. Yann Emmanuel Affi er ekki í hóp og þá fer Sebastian Haugland á bekkinn ásamt Aroni Inga Magnússyni og Sverri Páli Ingasyni. Ásbjörn Líndal Arnarsson, Bjarni Guðjón Brynjólfsson, Elvar Baldvinsson og Sigfús Fannar Gunnarsson, markahæsti leikmaður Lengjudeildarinnar í fyrra, koma inn.

Byrjunarlið Keflavíkur:
1. Ásgeir Orri Magnússon (m)
3. Axel Ingi Jóhannesson
4. Nacho Heras (f)
5. Davíð Helgi Aronsson
8. Þorlákur Breki Þ. Baxter
10. Stefan Ljubicic
11. Muhamed Alghoul
20. Marin Brigic
21. Alpha Conteh
22. Ásgeir Páll Magnússon
23. Eiður Orri Ragnarsson

Byrjunarlið Þórs:
1. Aron Birkir Stefánsson (m) (f)
2. Ásbjörn Líndal Arnarsson
7. Atli Sigurjónsson
8. Einar Freyr Halldórsson
15. Kristófer Kristjánsson
16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson
19. Ragnar Óli Ragnarsson
21. Elvar Baldvinsson
22. Ágúst Eðvald Hlynsson
25. Christian Greko Jakobsen
37. Sigfús Fannar Gunnarsson
Alpha Conteh kemur aftur inn í lið Keflavíkur.

Alpha Conteh kemur aftur inn í lið Keflavíkur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.16+4243
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik15+826
5Valur16-619
6Keflavík16-819
7ÍBV15-716
8Stjarnan15-815
9ÍA15-1215
10KA15-814
11FH15-1112
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.