Fotbolti.net
22.05.26 - 20:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Hemmi Hreiðars: Sætast í heimi

Auglýsing
Hemmi Hreiðars: Sætast í heimi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur vann nauman sigur á KA í Bestu deildinni í dag. Fótbolti.net ræddi við Hermann Hreiðarsson, þjálfara Valsmanna, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: KA 0 - 1 Valur
„Það sem við tökum fyrst og fremst út úr þessu er að það var gríðarlegur vilji og barátta í liðinu, vörðum markið með kjafti og klóm. Þú þarft að gera þetta ljóta í leiknum stundum og við gerðum það vel. Þeir fengu ekki mikið af dauðafærum þannig við gerðum þetta erfitt fyrir þá," sagði Hemmi.

KA fékk mikinn tíma til að athafna sig í fyrri hálfleik.

„Við vorum kærulausir með boltann í fyrri hálfleik, gáfum hann alltof einfalt frá okkur, það var alls ekki uppleggið að sparka honum frá okkur," sagði Hemmi.

„Þrjú stig er það sem skiptir máli og telur á endanum. Stundum er þetta ljótt en það er sætast í heimi að fara á útivöll og pikka upp þrjú stig 1-0."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.