Fotbolti.net
22.05.26 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kallar eftir aðgerðum í Keflavík - „Búið að tala um það í langan tíma"

Kallar eftir aðgerðum í Keflavík - „Búið að tala um það í langan tíma"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík hefur undanfarinn áratug eða svo verið talsvert í því að koma upp í efstu deild og falla. Það er ákveðinn stöðugleiki en það er ljóst að Keflvíkingar væru alveg til í að festa sig í sessi í efstu deild.

Umræðan fyrir Íslandsmót var á þá leiðina að það vantaði stemningu í kringum Keflavíkurliðið, að ekki nægilega margir Keflvíkingar væru á leikjum liðsins og stemningin takmörkuð.

Fótbolti.net ræddi við Harald Frey Guðmundsson, þjálfara Keflavíkur, fyrir leikinn gegn Þór sem hefst klukkan 18:00 í kvöld á HS Orku vellinum.

Hvernig upplifir þú stemninguna í kringum liðið?
Halli Guðmunds: Í fyrsta sinn í sumar
TENGT EFNI

Halli Guðmunds: Í fyrsta sinn í sumar

„Stemningin hér og á flestum stöðum kemur með góðum árangri, það helst rosalega vel í hendur. Maður tekur alveg eftir því þegar við vinnum leik, þá kemur smá eftirvænting og meiri stemning í bæjarfélaginu einhvern veginn. Að sama skapi er það alveg í hina áttina líka, maður finnur alveg fyrir því þegar það gengur ekki eins vel, samfélagið er þannig séð frekar lítið og maður hittir mjög marga. Maður fær að heyra í báðar áttir þegar það á við."

„Auðvitað viljum við alltaf hafa fleira fólk á vellinum, en þeim til varnar hér þá þarf að mínu mati að fá betri aðstæður fyrir áhorfendur í Keflavík að mínu mati. Líka í Njarðvík. Mér finnst við vera komin svolítið langt á eftir þar og ég vona að það fari að gerast eitthvað í þeim málum. Það er búið að tala um það í langan tíma."


Hvað vantar upp á?

„Umgjörðina. Grasið er fínt, ekkert að því, en stúkan er sú sama og þegar við urðum Íslandsmeistarar '69. Það er auðvitað búið að bolta einhver sæti niður í gamla steininn. Það vantar að endurnýja, líka t.d. klósettaðstöðuna."

„Hjá flestum klúbbum er búið að fara í alvöru endurbætur, en við höfum setið svolítið á hakanum. Það er kannski eitthvað pólitískt mál milli Keflavíkur og Njarðvíkur og svo bæjaryfirvalda - varðandi hvernig eigi að útfæra þetta. En þetta hefur verið í umræðunni mjög lengi,"
segir þjálfarinn.
Kallar eftir aðgerðum í Keflavík - „Búið að tala um það í langan tíma"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Kallar eftir aðgerðum í Keflavík - „Búið að tala um það í langan tíma"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.16+4243
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik15+826
5Valur16-619
6Keflavík16-819
7ÍBV15-716
8Stjarnan15-815
9ÍA15-1215
10KA15-814
11FH15-1112
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.