'Við erum mjög öflugir þegar við náum að liggja í millipressu og vinna svo boltann, þá erum við gríðarlega öflugir í að fara hratt upp völlinn'
„Við erum mjög spenntir fyrir leiknum, föstudagskvöld og nýliðaslagur á HS Orku vellinum," segir Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, fyrir leik liðsins gegn Þór í 8. umferð Bestu deildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 18:00 í kvöld.
Liðin léku saman í Lengjudeildinni í fyrra. Keflavík er með átta stig eftir fyrstu sjö umferðirnar og Þór er með sex stig. Stigin átta hafa komið í síðustu fimm leikjum Keflavíkur.
Liðin léku saman í Lengjudeildinni í fyrra. Keflavík er með átta stig eftir fyrstu sjö umferðirnar og Þór er með sex stig. Stigin átta hafa komið í síðustu fimm leikjum Keflavíkur.
Ánægðir með frammistöðuna en pínu svekktir með stigin
„Við erum mjög sáttir hingað til með spilamennskuna, en okkur finnst að við ættum að vera með fleiri stig; erum pínu ósáttir með stigasöfnunina. Það er kannski horft á það með Keflavíkuraugum, en það er allavega tilfinningin. Við erum meðvitaðir um það að ef við höldum áfram að sýna frammistöður þá koma stigin," segir þjálfarinn.
Ekki mikill munur á efri hlutanum í Lengju og neðri í Bestu
Frammistaðan hefur komið mörgum á óvart eftir tímabilið í fyrra þar sem Keflavík náði að troða sér í umspilið og komst þannig upp úr Lengjudeildinni.
„Á endanum komumst við rétt svo inn í umspilið, en við vorum samt alltaf í séns og vorum ekkert langt á eftir t.d. Njarðvík stigalega yfir allt mótið. Deildirnar eru ólíkar, í fyrra vorum við meira með boltann í flestum leikjum, reyndum að stjórna leikjunum með boltann. Í ár höfum við gert þetta öðruvísi, höfum held ég í öllum leikjunum okkar verið minna með boltann og reynt að stjórna leiknum þannig. Mér finnst hins vegar ekkert svakalegur munur á 3-5 bestu liðunum í Lengjudeildinni og svo neðri hlutanum í Bestu deildinni. Ég sé engan gríðarlegan mun á því, fyrir utan þá kannski bara umgjörðina, fleiri á vellinum og svoleiðis. Í dag eru mörg góð lið í fyrstu deildinni og mér finnst styrkleika munurinn ekki gríðarlegur."
„Við stigum upp um 'level' í vetur sem hópur og fengum líka inn styrkingar. Að okkar mati gerðum við mjög fína hluti á markaðnum, fengum inn rétta pósta."
Helsti styrkleiki liðsins
Í hverju er Keflavíkurliðið virkilega gott?
„Ég myndi segja að helsti styrkleiki okkar liggi í 'transitition'. Við erum mjög öflugir þegar við náum að liggja í millipressu og vinna svo boltann, þá erum við gríðarlega öflugir í að fara hratt upp völlinn."
Þurfa að halda sig við sitt
Hvernig leggst það í þig að mæta Þórsurum sem hafa tapað fjórum leikjum í röð?
„Þórsararnir hafa sýnt góða leiki, unnu Val og svo Framarana, voru í hörkuleik á móti KA sem er kannski smá leikur utan sviga (verandi nágrannaslagur). Ég held það sé rosalega mikilvægt fyrir okkur að fara ekki út úr því sem við erum að gera, halda áfram því sem við höfum gert í byrjun móts. Við erum á heimavelli og viljum spila skemmtilegan fótbolta, en við þurfum að halda í gildin sem við höfum verið með. Þá náum við vonandi í góð úrslit," segir Halli.
Á hverju er þetta að fara ráðast?
„Við þurfum að mæta með höfuðið skrúfað rétt á og tilbúnir í bardaga. Það eru allir leikir erfiðir í þessari deild, hvern og einn á sinn hátt. Við þurfum að hafa fyrir öllu og þá þyrstir örugglega í sigur. Ég býst við hörkuleik og vonandi skemmtilegur."
Í fyrsta sinn eru allir heilir
Alpha Conteh snýr aftur inn í hópinn en hann lék ekki gegn Stjörnunni í síðasta leik en hann er á láni frá Stjörnunni. Eru menn annars að detta inn eða út?
„Alpha hefur komið gríðarlega flottur inn í þetta hjá okkur, er mjög góður einn á móti einum, snöggur og við erum mjög ánægðir með hann."
„Ég held að í fyrsta sinn í sumar séu allir heilir, held það sé enginn á meiðslalista og allir klárir," segir þjálfarinn að lokum.
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Víkingur R. | 7 | 6 | 1 | 0 | 21 - 4 | +17 | 19 |
| 2. KR | 7 | 6 | 1 | 0 | 27 - 13 | +14 | 19 |
| 3. Fram | 7 | 4 | 2 | 1 | 20 - 13 | +7 | 14 |
| 4. Breiðablik | 7 | 3 | 3 | 1 | 13 - 8 | +5 | 12 |
| 5. Valur | 7 | 4 | 0 | 3 | 16 - 14 | +2 | 12 |
| 6. KA | 7 | 3 | 1 | 3 | 9 - 9 | 0 | 10 |
| 7. ÍA | 8 | 2 | 3 | 3 | 11 - 16 | -5 | 9 |
| 8. Keflavík | 7 | 2 | 2 | 3 | 10 - 12 | -2 | 8 |
| 9. Stjarnan | 7 | 2 | 1 | 4 | 14 - 17 | -3 | 7 |
| 10. Þór | 7 | 2 | 0 | 5 | 6 - 19 | -13 | 6 |
| 11. FH | 7 | 0 | 2 | 5 | 12 - 20 | -8 | 2 |
| 12. ÍBV | 8 | 0 | 2 | 6 | 8 - 22 | -14 | 2 |


