Fotbolti.net
22.05.26 - 22:58
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum

Auglýsing
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér líður mjög vel. Það hefur alltaf reynst erfitt að koma hingað á Stjörnuvöllinn og að sækja sigur. Að vinna eitt núll er algjörlega frábært, mér fannst við eiga það skilið. Heilt yfir sköpum við meira en þeir, en þeir eru alltaf stór hættulegir og ég er virkilega ánægður með að halda hreinu á móti þessu Stjörnuliði og að sigra" sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram eftir úti sigur gegn Stjörnunni á Samsungvellinum í Garðabæ.

Lestu um leikinn: Stjarnan 0 - 1 Fram

Hvernig fannst þér leikurinn spilast í dag?

„Mér fannst hann vera þannig að fyrstu þrjátíu, þrjátíu og fimm, fannst mér við vera betra liðið og við hefðum átt að nýta okkar möguleika betur þegar við vorum að vinna þá eftir há pressu. Mér fannst síðustu tíu í fyrri, þá var ég komin með smá áhyggjur að Stjarnan væri að fara taka seinni yfir. Svo byrja þeir aftur fyrstu tíu í síðari hálfleik mjög vel. Einhvern veginn náðum við að vinna okkur út úr því og náðum góðum sóknum og fengum betri tök á leiknum aftur."

Freyr Sigurðsson var í byrjunarliðinu í dag og kom með stoðsendingu.

„Freyr er frábær fótboltamaður og það er mjög erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum í einhvern tíma. En ég er með Fred, Tibbling og Ægi sem eru búnir að spila vel eftir Þórs leikin fyrir norðan. Á meðan þú ert að vinna og hala inn stigum, þá er erfitt að breyta byrjunarliðinu."

„Við erum með góða breidd, við erum með marga góða stráka á bekknum eða alla sem geta spilað leik frá byrjun og það veikir ekki liðið okkar."

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.