Fotbolti.net
22.05.26 - 21:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Siggi Höskulds ósáttur: Skilar sér núll inn á völlinn

Auglýsing
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs.

Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér líður ekki vel, eðlilega," sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, eftir 1-0 tap gegn Keflavík í Bestu deildinni í kvöld.

Þórsarar fengu vítaspyrnu til að jafna í leikinn en voru framan af ekki að skapa sér neitt og áttu ekki marktilraun í fyrri hálfleiknum.
Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 0 Þór
„Við erum bara ömurlegir á síðasta þriðjung. Alltof mikið af feilsendingum, alltof veikburða í kringum teiginn og erum að reyna alltof erfiða hluti sem klikkuðu allir. Við eigum ekki skot á markið í fyrri hálfleik. Við einföldum aðeins seinni hálfleik og mætum aðeins graðari. Þegar á botninn er hvolft er þetta enn einn leikurinn þar sem andstæðingurinn er með miklu meiri gæði á síðasta þriðjungi. Á meðan það er, á meðan við tökum jafn lélegar ákvarðanir og klikkum á eins mikið af sendingum þá munum við ekki vinna einn einasta leik."

Siggi hugsaði sig ekki einu sinni um þegar hann var spurður að því hvað þyrfti að laga.

„Sóknarleikinn, bara allt. Ákvarðanartökur, grimmari hlaup, við erum að æfa sóknarleik, fyrirgjafir og hlaup inn á box en það skilar sér núll inn á völlinn. Ég þarf að endurskoða það eitthvað. Sóknarleikurinn er ömurlegur á heildina."

Þór hefur núna tapað fimm leikjum í röð.

„Það er bara fáránlegt að tapa fimm leikjum í röð. Þrjú þessara tapa eru algjör óþarfi og óþarfi að tapa hér í dag. Það skiptir engu máli hvað þú gerir og hvernig hugarfarið er ef þú skorar ekki mark, þá taparðu eða gerir 0-0 jafntefli. Ef við skorum ekki eða búum til færi erum við dauðadæmir. Ég hef miklar áhyggjur ef menn ætla ekki að reima á sig skóna og taka þessar úrslitasendingar og haft hugarfarið til að hlaupa inn í teiginn og sparka boltanum í markið. Þá hef ég miklar áhyggjur. Við þurfum að vakna með það að við þurfum að gera betur," sagði Siggi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.