Chelsea og Arsenal vilja Kroupi - Man Utd bjartsýnt á að landa Ederson og Tonali - Inter hefur áhuga á Kepa
   fös 22. maí 2026 10:47
Kári Snorrason
Verður áfram í starfi hjá City Group
Pep Guardiola stýrði City í tíu ár.
Pep Guardiola stýrði City í tíu ár.
Mynd: EPA
Pep Guardiola verður ekki áfram stjóri Man City á næsta tímabili en mun þó áfram vera í hlutverki hjá eigendahópnum.

Félagið sagði í tilkynningu að Guardiola myndi þó halda áfram hlutverki hjá eigendahópnum sem alþjóðlegur sendiherra félagsins. Álíka starf og Jurgen Klopp er í hjá Red Bull.

„Þrátt fyrir brotthvarf sitt sem knattspyrnustjóri Manchester City mun Pep halda áfram sambandi sínu við City Football Group með því að taka að sér hlutverk alþjóðlegs sendiherra.“

„Hlutverkið felur í sér að hann veitir félögunum í samstæðunni tæknilega ráðgjöf og vinnur að sértækum verkefnum og samstarfi,“ segir í tilkynningu félagsins.
Slapp
banner
banner