Fotbolti.net
22.06.16 - 23:15
Hafliði Breiðfjörð

Alvaro Montejo í Fylki (Staðfest)

Alvaro í leik með Huginn.

Alvaro í leik með Huginn.

Canon

Mynd: Úr einkasafni

Spænski framherjinn Alvaro Montejo Calleja staðfesti á Twitter síðu sinni að hann hafi samið við Pepsi-deildarlið Fylkis.
Hann kom til félagsins á reynslu í apríl en varð fyrir því óláni að fótbrotna í æfingaleik gegn varaliði Reading á Englandi.

Alvaro skoraði þrettán mörk með Huginn sumarið 2014 en þá var hann einnig valinn í lið ársins í 2. deildinni.

Í fyrra stoppaði hann á Seyðisfirði í júlí og skoraði fjögur mörk í þremur leikjum með Huginn áður en hann hélt aftur til Spánar.

Alvaro lék í vetur með Pozuelo Alarcon í spænsku D-deildinni.

@alvaro8montejo firmando su primer contrato profesional con el Fylkir equipo de 1ª división Islandesa. Enhorabuena pic.twitter.com/vHnZ5zDpjk

— Jose Angel Montejo (@JoseAngeMontejo) June 22, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.