Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 22. júní 2021 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ekki enn vitað nákvæmlega hversu lengi Mikkelsen er frá
Thomas Mikkelsen.
Thomas Mikkelsen.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Thomas Mikkelsen hefur verið mikið meiddur í sumar og er það gríðarlega sárt fyrir Breiðablik enda einn besti sóknarmaður Pepsi Max-deildarinnar.

Mikkelsen meiddist á ökkla á æfingu á dögunum og sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðablik, þá: „Hann meiddist á ökkla á æfingu í gær og fer í myndatöku á föstudag. Það er ekki vitað nákvæmlega hversu alvarleg meiðslin eru en það getur vel farið svo að hann verði lengi frá."

Mikkelsen er búinn í myndatöku og er enn ekki vitað nákvæmlega hversu lengi hann verður frá.

Óskar svaraði spurningu um Mikkelsen í viðtali eftir 4-0 sigur á FH á sunnudag.

„Hann er bara meiddur á ökkla, og ég veit í raun og veru ekki hversu lengi hann verður frá. Við tökum það bara einn dag í einu," sagði Óskar um það.

Hægt er að horfa á allt viðtalið við Óskar hér að neðan.
Óskar Hrafn: Fylgdum eftir góðum leik gegn Val
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner