Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 22. júní 2021 21:22
Brynjar Ingi Erluson
Mjólkurbikarinn: Haukar og Völsungur áfram
Haukar fara í 16-liða úrslitin
Haukar fara í 16-liða úrslitin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukar og Völsungur eru komin í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir leiki kvöldsins.

Haukar gerðu sér góða ferð til Ólafsfjarðar þar sem liðið lagði KF 2-1 í hörkuleik.

Kristófer Dan Þórðarson kom Haukum yfir strax á 5. mínútu en KF svaraði með marki frá Cameron Botes aðeins fimm mínútum síðar.

Tómas Leó Ásgeirsson gerði gæfumuninn á 68. mínútu og Haukar í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins. Völsungur fylgir þeim þangað eftir að hafa unnið Leikni F. í framlengingu, 2-1.

Staðan var markalaus fram að 85. mínútu en þá skoraði Björgvin Stefán Pétursson fyrir Leiknismenn. Þremur mínútum síðar jafnaði Sæþór Olgeirsson metin og þurfti því að fara með leikinn í framlengingu.

Jakob Héðinn Róbertsson reyndist hetja Völsungs á 103. mínútu og liðið áfram í 16-liða úrslit.

Úrslit og markaskorarar:

KF 1 - 2 Haukar
0-1 Kristófer Dan Þórðarson ('5 )
1-1 Cameron Botes ('10 )
1-2 Tómas Leó Ásgeirsson ('68 )

Völsungur 2 - 1 Leiknir F.
0-1 Björgvin Stefán Pétursson ('85 )
1-1 Sæþór Olgeirsson ('88 )
2-1 Jakob Héðinn Róbertsson ('103 )
Athugasemdir
banner
banner