Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 22. júní 2021 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho búinn að hringja í Sergio Ramos
Sergio Ramos. Mögnuð vera.
Sergio Ramos. Mögnuð vera.
Mynd: Getty Images
Samkvæmt ítalska fjölmiðlinum La Gazzetta dello Sport þá er Jose Mourinho að vinna í því að sannfæra Sergio Ramos um að koma til Roma.

Ramos er 35 ára gamall en hann er að yfirgefa Real Madrid eftir 16 ára veru hjá félaginu.

Það verður athyglisvert að sjá hvað þessi mikli sigurvegari tekur sér fyrir hendur. Gæti Roma verið næsti áfangastaður hans?

Mourinho er á leið í sitt fyrsta tímabil með Roma og hann er að leita að reynslumiklum leikmönnum sem geta hjálpað honum að vinna núna. Hann er að fá Rui Patricio í markið og Granit Xhaka á miðjuna.

Ramos væri draumur fyrir Roma, en það eru sögur um það að Chris Smaling, varnarmaður félagsins, gæti verið á leið aftur í enska boltann. Hann er orðaður við Everton.
Athugasemdir
banner
banner