Fotbolti.net
22.07.26 - 00:23
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Heimir svekktur: Vítakeppni er bara vítakeppni, við töpuðum

Auglýsing
Heimir svekktur: Vítakeppni er bara vítakeppni, við töpuðum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn

„Auðvitað er þetta svekkjandi" sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis eftir tap í vítaspyrnukeppni gegn Aftureldingu á heimavelli.

Lestu um leikinn: Fylkir 4 - 5 Afturelding

„Töpuðum í vítakeppni þar sem allt getur gerst, kannski vonbrigði með seinni hálfleikinn. Mér fannst þeir byrja betur, svo tókum við yfir leikinn, spiluðum frábærlega á köflum. Byrjuðum svo seinni hálfleikinn vel en náðum ekki að fylgja því eftir og hættum að hreyfa okkur og náðum ekki að spila neinn fótbolta. Vorum alltaf að fá eitthverja möguleika, sjálfum séð þeir líka, þannig að þetta var skemmtilegur leikur. En svo fékk sitthvort liðið dauðafæri minnir mig í seinni hálfleik, eins og ég segi vítakeppni er bara vítakeppni, við töpuðum."

Heimir segir að eftir að Fylkir skoraði datt Fylkir of langt niður.

,Eftir að við skoruðum þá fannst mér við detta niður of mikið og náðum ekki að halda boltanum nógu vel. Bara seinni hálfleikurinn var ekki nógu góður."

Heilt yfir hvernig fannst þér frammistaðan?

„Heilt yfir var þetta tvö góð lið að mætast, hörkuleikur og frábær stemming á vellinum, stuðningsmenn Fylkis frábærir. Við þurfum að reyna aftur á ári."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.