Stofnandi Amazon gæti eignast hlut í Liverpool

Jeff Bezos og eiginkona hans Lauren Sanchez.

Mynd: EPA

Jeff Bezos, stofnandi Amazon, hefur átt í viðræðum við fjárfestahóp sem er að vinna í að kaupa um 30% hlut í Liverpool.
Amit Bhatia fyrrum meðeigandi Queens Park Rangers fer fyrir hópnum sem hefur lagt fram drög að tilboði og á í viðræðum við aðra mögulega fjárfesta.
Bezos, sem er 62 ára, býr yfir auð upp á um 257 milljarða Bandaríkjadala samkvæmt Forbes, sem gerir hann að fjórða ríkasta manni heims.

Bezos hefur þegar kannað möguleika á því að gera tilboð í NFL-félögin Seattle Seahawks og Washington Commanders en þetta er í fyrsta sinn sem hann er orðaður við ensku úrvalsdeildina.
Bezos gegnir nú stöðu stjórnarformanns Amazon, en hann lét af daglegum rekstri netverslunarinnar þegar hann hætti sem forstjóri fyrir fimm árum. Undir hans stjórn hefur netverslunin á undanförnum árum leitast við að breikka starfsemi sína og hasla sér völl á sviði afþreyingar, auk þess sem hún hefur tryggt sér fjölda sýningarréttinda fyrir íþróttaviðburði á streymisveitu sinni.