Fotbolti.net
22.07.26 - 18:52
Brynjar Ingi Erluson

Summerville til Al Hilal - „Here we go!“

Summerville til Al Hilal - „Here we go!“
Canon

Mynd: EPA

Hollenski vængmaðurinn Crysencio Summerville er á leið til sádi-arabíska félagsins Al Hilal frá West Ham fyrir 65 milljónir punda.
Roma hafði lengi verið í bílstjórasætinu í baráttunni um Summerville og lagt fram nokkur tilboð sem West Ham hafnaði. Al Hilal kom hins vegar sterkt inn og virðist hafa stolið honum undan nefinu á Rómverjum.

Sádi-arabíska félagið bauð töluvert hærri upphæð en Roma og hefur Hollendingurinn samþykkt að ganga til liðs við Al Hilal.

Munnlegt samkomulag liggur fyrir og Summerville mun gangast undir læknisskoðun á næstu tveimur sólarhringum áður en félagaskiptin verða staðfest.

Samkvæmt ítölskum miðlum hefði Summerville þéna 4,5 milljónir evra í árslaun hjá Roma, en Al Hilal bauð honum 16 milljónir evra.

Summerville er 24 ára og var lykilmaður í liði West Ham sem féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor. Þá kom hann að fjórum mörkum með hollenska landsliðinu á HM í sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.