Fotbolti.net
22.08.15 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Alen Halilovic lánaður til Sporting Gijon (Staðfest)

Alen Halilovic er efnilegur

Alen Halilovic er efnilegur

Canon

Mynd: Getty Images

Barcelona hefur ákveðið að lána hinn efnilega, Alen Halilovic, til Sporting Gijon út tímabilið.

Þessi 19 ára gamli Króati hafði verið orðaður við lið í Portúgal, en nú er það ljóst að hann verður áfram á Spáni.
Umboðsmaður leikmannsins staðfesti það á miðvikudag að leikmaðurinn væri á leið til Sporting og nú hafa félögin tvö einnig staðfest það.

Halilovic kom upp úr akademíu Dinamo Zagreb og var lykilmaður hjá aðalliðinu áður en hann samdi við Barcelona síðasta sumar.

Á síðasta tímabili lék hann aðallega með B-liði Börsunga, en kom þó við sögu í einum leik hjá aðalliðinu.

Heimild: Goal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.