Fotbolti.net
22.08.15 - 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Burnley kaupir framherja á metfé (Staðfest)

Andre Gray

Andre Gray

Canon

Mynd: Getty Images

Burnley er búið að festa kaup á framherjanum, Andre Gray, frá Brentford, en talið er að kaupverðið sé 9 milljónir punda og er það félagsmet hjá Burnley.

Gray krotaði undir þriggja ára samning við Burnley, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Hann hafnaði svipuðu tilboði frá Bristol City en einnig var áhugi á leikmanninnum frá Hull.

Uppgangur Grey hefur verið mikill, en fyrir þremur árum spilaði hann í utandeildinni með Hinckley United og því má líkja honum við sóknarmenn eins og Danny Ings og Charlie Austin sem gerðu slíkt hið sama.

Hann skoraði 18 mörk fyrir Brentford á síðasta tímabili, en liðið fór alla leið í umspil um sæti í ensku úrvalsdeildinni.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.