Fotbolti.net
22.08.19 - 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Junior Agogo látinn

Junior Agogo látinn
Canon

Mynd: Getty Images

Junior Agogo, fyrrum landsliðsmaður Gana, er látinn, fertugur að aldri.
Agogo fékk heilablóðfall árið 2015 Hann hafði lagt skóna á hilluna tveimur árum áður.

Hann skoraði 12 mörk í 27 landsleikjum fyrir Gana á hátindi fótboltaferilsins frá 2006 til 2009.

Hann var fæddur í London og spilaði lengi vel á Englandi. Hann kom upp í gegnum akademíu Sheffield Wednesday og spilaði meðal annars með QPR, Barnet, Bristol Rovers og Nottingham Forest. Hann lék einnig í MLS-deildinni með Chicago Fire, Colorado Rapids og San Jose Earthquakes.

Hann endaði ferilinn hjá Hibernian í Skotlandi eftir að hafa leikið í Egyptalandi og í Kýpur.

Margir hafa minnst Agogo á samfélagsmiðlum í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.