„Töpum ekki leik ef ég ver eins og í dag“

Heimamenn héldu hreinu í Kórnum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimamenn héldu hreinu í Kórnum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hvernig eru fyrstu viðbrgöð?
„Geggjuð og virikilega gott, við uppskárum eins og við sáðum í dag."
Fannst þér þetta vera 3-0 leikur?
„Þeir voru ekki að skapa sér mikið fyrr en í lokin þegar við vorum þreyttir og lágum aðeins tilbaka. Annars sannfrærandi þannig að ég bara 3-0 leikur."
Ólafur var valinn maður leiksins er það ekki bara eitthvað til að auka gleðina?
„Jú geðveik tilfinning en ég gæti þetta ekki án varnarmanna og liðsféleagana. Þetta kom loksins, stórbrotnar vörslur hafa verið af skornum skammti í sumar hjá manni en nú er búið að kveikja á þessu. Ef ég ver svona áfram þá töpum við ekki leik".
Það er atvik í lokin þar sem Hlynur Þórhallsson, leikmaður Þróttar, fær rautt fyrir að rífa kjaft við þig, hvað gerist þar?
„Já hann sparkar aðeins í mig þegar ég fer niður og ég ýki það kannski aðeins en rautt var það".
Næsti leikur er í Grindavík hvernig leggst hann í menn? „Bara erfiður útileikur á grasi í Grindavík, við þurfum að gera eins og hér í dag og þá hef ég engar áhyggjur. Þrír púnktar í hús."
