Fotbolti.net
22.08.26 - 13:42
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Dramatík í Birmingham - Þægilegt hjá Millwall

Tairyk Arconte fagnar með stuðningsmönnum Millwall

Tairyk Arconte fagnar með stuðningsmönnum Millwall

Canon

Mynd: Millwall FC

Milwall er með fullt hús stiga eftir tvær umferðir í ensku B-deildinni en liðið vann þægilegan 3-0 sigur gegn tíu mönnum Norwich í dag.
Millwall átti frábært síðasta tímabil og var grátlega nálægt því að tryggja sér sæti í ensku úrvalsdeildinni. Liðið endaði aðeins einu stigi á eftir Ipswich Town sem hafnaði í öðru sæti, en Millwall datt síðan út í undanúrslitum umspilsins.

Millwall ætlar sér að gera enn betur í vetur og hefur byrjað tímabilið af miklum krafti.

Tairyk Arconte skoraði fyrstu tvö mörkin gegn Norwich í dag áður en Jose Cordoba fékk að líta rauða spjaldið hjá gestunum.

Luke Cundle gerði síðan endanlega út um leikinn sex mínútum fyrir leikslok.

Millwall hefur því unnið báða leiki sína án þess að fá á sig mark en Norwich er enn án stiga.

Demarai Gray bjargaði Birmingham City stigi í 2-2 jafntefli gegn Bristol City. Dom Ballard kom gestunum í 2-1 þegar fimm mínútur voru eftir en Birmingham fékk vítaspyrnu seint í uppbótartíma sem Gray skoraði úr.

Birmingham er með tvö stig eftir fyrstu tvo leikina en Bristol City eitt.

Portsmouth vann þá nýliða Lincoln, 3-1, á útivelli. Ryan Kavuma-McQueen, Adrian Segecic og Ebou Adams skoruðu mörk Portsmouth sem náði í sín fyrstu stig á tímabilinu. Lincoln er enn án stiga.

Birmingham 2 - 2 Bristol City
0-1 Scott Twine ('33 )
1-1 Sam Tickle ('42 , sjálfsmark)
1-2 Dom Ballard ('85 )
2-2 Demarai Gray ('90 , víti)

Lincoln City 1 - 3 Portsmouth
0-1 Ryan Kavuma-McQueen ('7 )
0-2 Adrian Segecic ('16 )
1-2 Reeco Hackett-Fairchild ('32 , víti)
1-3 Ebou Adams ('69 )

Millwall 3 - 0 Norwich
1-0 Tairyk Arconte ('18 )
2-0 Tairyk Arconte ('58 )
3-0 Luke Cundle ('84 )
Rautt spjald: Jose Cordoba, Norwich ('64)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Millwall2+56
1Cardiff City5+815
1Coventry46+5295
2Ipswich Town46+3384
2Charlton Athletic2+26
2Ipswich Town5+312
3Leeds5+511
3QPR2+24
4Wolves5+310
4Bolton2+14
5Middlesbrough2+14
5Sheffield Utd5+19
6Nott. Forest509
6Hull City46+473
6Watford2+14
7Swansea2+14
7Preston NE5+18
8Wolves2+14
8Hull City5+57
9West Brom1+13
9Middlesbrough5+17
10Portsmouth203
10QPR507
11Reading507
11Blackburn202
12Derby County5-27
12Cardiff City202
13Bristol City5+16
13Wrexham202
14Birmingham202
14Fulham5+16
15Barnsley506
15Sheffield Utd202
16Sheff Wed506
16Burnley101
17Millwall5+25
17West Ham2-11
18Aston Villa5-25
18Derby County2-11
19Sunderland5-35
19Bristol City2-21
20Birmingham5-34
20Preston NE2-20
21Stoke City2-20
21Burton5-54
22Oxford United46-1447
22Lincoln City2-30
22Norwich5-64
23Brentford5-42
23Leicester46-1046
23Norwich2-40
24Southampton20-1
24Bolton5-62
24Sheff Wed46-600
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.