Fotbolti.net
22.08.26 - 15:46
Brynjar Ingi Erluson

Stefán Teitur skoraði tvö í bikarnum - Stöngin þvældist fyrir Davíð í risasigri

Stefán skoraði tvö í frábærum sigri Hannover

Stefán skoraði tvö í frábærum sigri Hannover

Canon

Mynd: Hannover 96

Stefán Teitur Þórðarson var sjóðandi heitur með Hannover sem slátraði Hemelingen, 9-1, í þýska bikarnum í dag.
Skagamaðurinn var gerður að fyrirliða liðsins fyrir tímabilið, en byrjunin í deildinni hefur valdið vonbrigðum og liðið tapað fyrstu tveimur leikjum sínum.

Hannover fékk gott tækifæri til að komast á sigurbraut gegn Hemelingen í bikarnum í dag og nýtti það heldur betur. Stefán skoraði tvennu í fyrri hálfleik en fékk ekki tækifæri til að fullkomna þrennuna.

Hann var tekinn af velli í hálfleik þegar staðan var 6-0. Hannover bætti við þremur mörkum í síðari hálfleik og vann 9-0 stórsigur.

Jón Dagur Þorsteinsson byrjaði hjá Herthu Berlín gegn Saarbrucken og átti góðan leik. Hann fór af velli undir lok venjulegs leiktíma, skömmu áður en Saarbrucken jafnaði og tryggði sér framlengingu.

Davíð Kristján Ólafsson lék allan leikinn í 3-1 sigri Polonia Warszawa í pólsku B-deildinni. Polonia er í öðru sæti deildarinnar með tíu stig.

Lúkas Petersson var ekki í leikmannahópi Hoffenheim sem vann Aue, 4-0.

Davíð Snær Jóhannsson var í liði Álasunds sem niðurlægði Langevag, 13-0, í norska bikarnum. Davíð fékk tvö frábær færi til að skora en boltinn hafnaði í stönginni í bæði skiptin.

Heppnin var því ekki með honum í dag. Ólafur Guðmundsson sat allan tímann á varamannabekk Álasunds sem tryggði sér sæti í 64-liða úrslitum.
Davíð Snær skaut tvisvar í stöng

Davíð Snær skaut tvisvar í stöng

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.