Fotbolti.net
22.08.26 - 12:00
Brynjar Ingi Erluson

Chelsea hafnar tilboði Roma

Chelsea hafnar tilboði Roma
Canon

Mynd: EPA

Chelsea hefur hafnað tilboði ítalska félagsins Roma í enska vængmanninn Jamie Gittens.
Roma lagði fram lánstilboð í Englendinginn með kaupákvæði en Chelsea hafnaði því. Félagið segir Gittens hvorki vera til sölu né láns eins og staðan er núna.

Chelsea hefur þegar selt Alejandro Garnacho til Aston Villa og óvissa ríkir um framtíð Pedro Neto.

Neto er metinn á um 100 milljónir punda og Al Hilal hefur sýnt honum mikinn áhuga. Tottenham fylgist einnig með Portúgalanum takist félaginu ekki að fá Cody Gakpo frá Liverpool.

Chelsea hyggst því ekki missa hinn 22 ára gamla Gittens líka. Hann gekk til liðs við félagið frá Borussia Dortmund á síðasta ári og skoraði eitt mark ásamt því að leggja upp fimm í 27 leikjum á sínu fyrsta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.